Home Page »  S »  Skalmold
   

Vali Lyrics


Skalmold Vali

Sól kemur upp og sigur er unninn
Sit ég við brunninn
Brynhildi hjá og bíð þess er kemur
Barði á þremur
Því er ég orðinn marktækur maður
Mjög er ég glaður
Hvernig skal greitt og hver hefur valdið?
Hvert verður gjaldið?

Áfram!
Birtist mér lævís og lifandi sála
Áfram!
Loki nú umbreytir syninum Vála
Áfram!
Vargur af svefninum vaknar
Áfram!
Váli, hann blóðbragðsins saknar

Þetta er borgun fyrir minn bata
Brynhildi glata
Mitt eigið líf að launum ég myndi
Láta í skyndi
Birtast í fjarska, bíða og voka
Börnin hans Loka
Trylltur er Váli, tennurnar sterkar
Tæta upp kverkar

Áfram!
Þetta er lífið sem þótti mér kærast
Áfram!
Þjáningarhljóðin í aukana færast
Áfram!
Innyflin rífur og ristir
Áfram!
Ró, litla systir

Einn skal vera undir herðum
Eyðileggja hana verðum
Annar liggur undir lendum
Ljót sú kvöl er henni sendum
Þriðja höfum undir hnjánum
Hún mun ekki fylgja dánum
Blæðandi, við bindum, meyna
Brynhildi á hvassa steina

Vægðarlaus rífur nú hana á hol
Horfinn er neistinn og Brynhildar þol
Sárin öll fossa og sjóðheitur dreyr
Seytlar til jarðar, en hún ekki deyr
Hjálparlaus álengdar horfi ég á
Hún er öll blóðrisa, marin og blá
Kallar svo nafn mitt, það nístir og sker
Náföla andlitið sýnir hún mér
Bróður sinn grátandi síðastan sér
Systir mín litla, hvað gerði ég þér?

Kvalin að eilífu kveðjist þið nú
Loki þín gætir, Brynhildur
Sargast öll grjótin í sárin þín þrjú
Loki þín gætir, Brynhildur
Enginn mun hlusta ´aekkanna sog
Loki þín gætir, Brynhildur
Bróðir þinn seldi víst sál þína og
Loki þín gætir, Brynhildur
Most Read Skalmold Lyrics
» Loki
» Skotta
» Narfi
» Sorg
» Hel


smell like your favorite singer: fragrances inspired by music icons
Smell Like Your Favorite Singer: Fragrances Inspired By Music Icons
Chris Page - 03 Nov 2025
inside the mansions of america’s richest singers
Inside The Mansions Of America’s Richest Singers
Sasha Mednikova - 28 Oct 2025
white house rejects claims of trump considering clemency for diddy
White House Rejects Claims Of Trump Considering Clemency For Diddy
Faith Thompson - 21 Oct 2025
decoding the blockchain beat: how crypto composes a new music era
Decoding The Blockchain Beat: How Crypto Composes A New Music Era
Evren E. - 17 Oct 2025
katy perry teases justin trudeau romance rumors at london concert
Katy Perry Teases Justin Trudeau Romance Rumors At London Concert
Sasha Mednikova - 14 Oct 2025
Browse: