Home Page »  S »  Skalmold
   

Upprisa Lyrics


Skalmold Upprisa

Risin upp af jörðu, reikul eru spor
Röddin brostin, andinn sár og lamað er mitt þor
Geng ég upp að Vörðu, gái yfir brún
Garður hruninn, bæjarrúst og sviðin öll mín tún
Óðinn!
Heimdallur!
Himnahallir!
Baldur!
Forseti!
Æsir allir!
Aumkið ykkur yfir mig, blásið mér í brjóst
Baráttu- og hefndarmóð, núna er mér ljóst
Að það er verk sem út af stendur, ég verð að sinna því
Valinn þekkja fallnir, svartan himin kólguský
Stillið mínar hendur, styrkið þreyttan fót
Styðjið við mig, bræður, sækið axir, sverð og spjót
Nár við fætur liggur, nídd er sérhver taug
Núna söfnum líkunum og leggjum þau í haug
Hugurinn er styggur, hefndarþorstinn sár
Heiðin geymir friðþægingu upp við Jökulsár
Upprisinn á ögurstund
Örlög skapa hetjulund
Loksins núna léttast spor
Lyftist brún og eflist þor
Birginn þannig býður þeim
Bitvargi úr Heljarheim
Heldur hann í veika von
Vígamaður Óðinsson
Rís hann upp og sjá - Ég er afli gæddur!
Ríður burtu Gná - Þessi ógnarkraftur!
Berserkur upp rís - Ég er Baldur fæddur!
Bliknar heilladís - Ég kem aldrei aftur!
Ríðum móti hættum, ríðum yfir heiði
Ríðum móti vættum, leggjum bú í eyði
Upp er risinn Baldur Óðinsson!
Hefnum fyrir vígin, hættur okkur lokka
Heiman fetum stíginn, seint mun klárinn brokka
Upp er risinn Baldur Óðinsson
Most Read Skalmold Lyrics
» Hel
» Mara
» Vali
» Skotta
» Loki
» Heima
» Narfi


shining a new light: how modern concert & studio lighting transforms music
Shining A New Light: How Modern Concert & Studio Lighting Transforms Music
Sasha Mednikova - 25 Jun 2025
ed sheeran drops “drive” for f1: the album with rock icons backing him
Ed Sheeran Drops “drive” For F1: The Album With Rock Icons Backing Him
Evren E. - 20 Jun 2025
will smith shares emotional on-stage moment with son jaden during father’s day concert
Will Smith Shares Emotional On-stage Moment With Son Jaden During Father’s Day Concert
Evren E. - 16 Jun 2025
mariah carey returns to the spotlight with daring new “type dangerous” music video
Mariah Carey Returns To The Spotlight With Daring New “type Dangerous” Music Video
Sasha Mednikova - 10 Jun 2025
the harmony of color and sound: american singers shaping contemporary art
The Harmony Of Color And Sound: American Singers Shaping Contemporary Art
Sasha Mednikova - 04 Jun 2025
Browse: