Home Page »  S »  Skalmold
   

Loki Lyrics


Skalmold Loki

Nóttin kemur og nístir inn í bein
Nú í fjarska ég heyri hana gráta
Elsku systir , sem alltaf varst svo hrein
Ekkert vildi ég fyrir koma láta
Löngum stundum þar léku saman börn
Lítil systkin sem Óðinn hafði skapað
Brást ég illa og Brynhildi hef tapað
Loki!
Þetta er hans vilji
Loki!
Veit þó ekki skilji
Loki!
Tæra vildi taka
Loki!
Trú, og hana þjaka
Engan höfðum og alltaf vorum snauð
Ekkert virtist þó systkinunum granda
Vissi ekki að vísan átti auð
Vesæll húki og hlusta á mig anda
Börn hans Loka, ég barðist við þau öll
Batt og særði og kynntist sumum náið
Hetjan þessi sem fer um víðan völl
Er vesæll maður sem getur ekki dáið
Loki!
Systur mína seldi
Loki!
Sit ég undir feldi
Loki!
Harma mun ég hefna
Loki!
Hatursloforð efna
Tilveruna tryllingur skekur
Tregafleyg í hjarta þitt rekur
Haldið þrengist
Hildur engist
Hráki snáksins andlitið þekur
Endalaust munt þrautina þreyja
Þú skalt kveljast mest allra meyja
Alla daga
Illt mun naga
Auma sál sem fær ekki að deyja
Næra sinnið, heiðna hata
Heimskir Óðin lofa
Tæra sálu árar ata
Aldrei skaltu sofa
Ég er Loki, ég er Loki
Þú ert undir mínu oki
Hilmar Baldursson
Græsku beitum, sjaldan sefast
Sorgir þegar vinnum
Gæsku sína alltaf efast
Ekki duginn finnum
Ég er Loki, ég er Loki
Þú ert undir mínu oki
Hilmar Baldursson
Sæta engra veldur vopni
Vondu udnir oki
Vætta Miðgarðs augu opni
Óðinn heitir Loki
Ég er Loki, ég er Loki
Þú ert undir mínu oki
Hilmar Baldursson
Most Read Skalmold Lyrics
» Sorg
» Vali
» Skotta
» Narfi
» Hel


music, tours, and motherhood: how rihanna stays connected on the road
Music, Tours, And Motherhood: How Rihanna Stays Connected On The Road
Evren E. - 29 Jun 2026
tom holland marries zendaya in a private wedding ceremony
Tom Holland Marries Zendaya In A Private Wedding Ceremony
Sasha Mednikova - 16 Jun 2026
the new hitmakers: how social media is rewriting the rules of music discovery
The New Hitmakers: How Social Media Is Rewriting The Rules Of Music Discovery
Chris Page - 05 Jun 2026
katy perry brings massive free concert to mexico fenapo festival
Katy Perry Brings Massive Free Concert To Mexico Fenapo Festival
Faith Thompson - 27 May 2026
john legend sets the stage on fire for the 2026 manhattan summer gala
John Legend Sets The Stage On Fire For The 2026 Manhattan Summer Gala
Sasha Mednikova - 13 May 2026
Browse: