Home Page »  S »  Svavar Knutur
   

Vetrarsol Lyrics


Svavar Knutur Vetrarsol




Allt sem er, brennur, fer
Undan heimsins hörkuéljum
Gæðir sér gammager
Á hjörtum manna í slíkum heljum

En eina veit ég vetrarsól
Sem veitir sálu minni skjól

Án þín er allt sem gler
Og framtíðin í kuldabáli
Segðu mér hvernig þér
Hugnast að hitta mig að máli

Þá myndi birta í hellinn minn
Skína æ svo fögur inn

Eina mey langar grey
Að finna umfaðmandi arma
Þó mín fley framar ei
Sigli, aldrei mun það harma

Því nú mun birta í hellinn minn
Skína æ svo fögur inn



Browse: